Um tímann og vatnið sýnd undir berum himni í Central Park

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið verður sýnd undir berum himni í Central Park í New York miðvikudaginn 7. október. Andri Snær Magnason rithöfundur og sögumaður myndarinnar greindi frá þessu í gær. Sýningin er hluti af Central Park Conservancy Film Festival, sem National Geographic stendur að, og er aðgangur ókeypis.

Hliðin að sýningarsvæðinu, á grasflötinni milli Cherry Hill og Sheep Meadow, verða opnuð klukkan 17:30 og boðið verður upp á dagskrá og tónlist áður en myndin hefst við sólsetur, eða um klukkan 19.

Um tímann og vatnið er leikstýrt af Óskarstilnefnda leikstjóranum Söru Dosa og byggir á sögu Andra Snæs. Í myndinni fléttast saman fjölskyldusaga Andra, ljósmyndir og kvikmyndaefni úr safni fjölskyldunnar, íslenskar þjóðsögur og söngvar og þær miklu breytingar sem eiga sér stað í íslenskri náttúru þegar jöklar landsins hopa.

Central Park Conservancy Film Festival fer fram dagana 6.–9. október og er þetta í 23. sinn sem hátíðin er haldin. Allar sýningar hátíðarinnar eru ókeypis og hvetjum við alla Íslendinga sem eiga leið um New York að missa ekki af þessum einstaka viðburði.