Sextíu ár eru í dag liðin frá því að reglulegar sjónvarpsútsendingar hófust á Íslandi. Margt af því fólki sem byggði upp íslenskt sjónvarp rifjar í tilefni dagsins upp leikgleði, tilraunastarf og ævintýri fyrstu áratuganna.
Byrjum á frásögn dagskrárgerðarkonunnar Maríönnu Friðjónsdóttur. Þegar hún hóf störf hafði íslenska sjónvarpið ekki enn náð fjögurra ára aldri. Meðalaldur starfsfólksins í húsinu á Laugavegi var, að hennar sögn, um 25 ár og allir voru „helteknir af því, allan sólarhringinn, að finna upp íslenskt sjónvarp. Stærsti sandkassi Íslandssögunnar næstum því.“ Fólkið þurfti bókstaflega að finna miðilinn upp á íslensku, hvernig fréttir ættu að líta út, hvernig tala ætti við myndavélina, hvernig segja mætti íslenskar sögur og hvað þjóðin vildi sjá þegar hún settist niður fyrir framan skjáinn.
„Man eins og gerst hafi í gær“
Húsvíkingurinn Sigríður Pétursdóttir, fyrrverandi þula og dagskrárgerðarkona, rifjar upp sitt fyrsta sjónvarpsaugnablik:
„Man eins og gerst hafi í gær þegar ég horfði fyrst á sjónvarp. Dísu í flöskunni heima hjá vinkonu minni þegar við vorum níu ára.“
Þó Sigríður sé dóttir Péturs heitins Jónassonar ljósmyndara, sem alla tíð var snemma að tileinka sér nýja tækni, þá eignaðist fjölskylda hennar ekki sjónvarp fyrr en tveimur árum síðar, en þá hafði áhuginn þegar kviknað. Nítján ára gömul mætti hún í starfskynningu í Sjónvarpshúsið á Laugavegi og átti eftir að starfa þar við fjölmörg verkefni.
Hún nefnir meðal annars Mósaík, Djöflaeyjuna og Lundúnaárin, en eitt eftirminnilegasta augnablikið kom miklu síðar: að sitja við hlið Boga Ágústssonar í fréttasettinu þegar Hildur Guðnadóttir vann Óskarsverðlaunin.
„Hjartanlega til hamingju með sextugsafmælið RÚV Sjónvarp og takk fyrir mig,“ skrifar Sigríður.
Spaugstofumaðurinn Pálmi Gestsson lýsir RÚV einfaldlega sem „góðri stofnun og traustri, stofnun sem mér þykir vænt um“.
Og af lýsingum frumkvöðla sjónvarpsins má greina leikgleðina sem einkennt hefur upphafsárin, og að hún virðist enn lifa góðu lífi. Viktoría Hermannsdóttir, sem hefur starfað á RÚV í tíu ár, segir það forréttindi að fá að vinna við að segja sögur með því fagfólki sem þar starfar.

Tvö kvöld í viku og ekkert sjónvarp í júlí
Þegar Sjónvarpið hóf útsendingar 30. september 1966 var veruleikinn talsvert annar en sá sem íslenskir áhorfendur þekkja í dag.
Fyrsta útsendingin hófst á ávarpi Vilhjálms Þ. Gíslasonar útvarpsstjóra og í kjölfarið tók við blaðamannafundur þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sat fyrir svörum.
Fyrst um sinn var aðeins sjónvarpað tvo daga í viku, á miðvikudögum og föstudögum. Síðar fjölgaði útsendingardögum, en lengi vel var ekkert sjónvarp á fimmtudögum. Fram til ársins 1983 var einnig sjónvarpsfrí allan júlímánuð.
Myndin var svarthvít fyrstu árin en reglulegar litasjónvarpsútsendingar hófust undir lok árs 1977.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, aðstoðardagskrárstjóri RÚV, rifjar upp að íslenskt sjónvarp hafi raunar komið seint miðað við nágrannalöndin. Á sínum tíma hafi verið tekist á um hvort stofna ætti íslenskt sjónvarp yfir höfuð. Sumir óttuðust að sjónvarpsáhorf myndi grafa undan hefðbundnu samfélagslífi og jafnvel vinnusemi þjóðarinnar.
Skóli heillar atvinnugreinar
Saga RÚV síðustu 60 ár er ekki aðeins saga þess sem þjóðin hefur séð á skjánum. Hún er líka stór hluti af atvinnusögu íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsgerðar.
Í húsakynnum Sjónvarpsins hafa kynslóðir leikstjóra, kvikmyndatökumanna, klippara, hljóðmanna, framleiðenda, handritshöfunda, leikara, fréttamanna og dagskrárgerðarfólks stigið sín fyrstu skref. Þar varð til þekking sem síðar dreifðist út um íslenskan kvikmyndaiðnað og sjálfstæða framleiðslu.
Áður en öflugur sjálfstæður kvikmynda- og sjónvarpsiðnaður varð til hér á landi var RÚV einn af fáum stöðum þar sem hægt var að vinna samfellt við hreyfimyndagerð, læra iðnina af reyndara fólki og gera tilraunir með formið.
Þar urðu til barnaþættir, leikverk, heimildarmyndir, skemmtiþættir, tónlistarupptökur og fréttaefni sem ekki aðeins mótaði sjónvarpsmenningu þjóðarinnar heldur skapaði faglega reynslu sem íslensk kvikmyndagerð býr enn að.
RÚV hefur jafnframt um áratugaskeið verið mikilvægur vettvangur fyrir íslenskar heimildarmyndir, leikna dagskrá og samstarf við sjálfstæða framleiðendur. Fyrir kvikmyndagerð í litlu málsamfélagi skiptir slíkur vettvangur miklu: staður þar sem hægt er að segja sögur á íslensku, um íslenskt samfélag, fyrir íslenska áhorfendur.
Sameiginlegt minni þjóðarinnar
Kannski liggur stærsta framlag Sjónvarpsins í öllum myndunum sem safnast hafa saman á þessum sex áratugum. Það hefur verið einstaklega gefandi að sjá þær Helgu Láru Þorsteinsdóttur og Viktoríu Hermannsdóttur kafa í gullkistur safnadeildar RÚV.
Fréttamyndir af stórviðburðum og hversdagslífi, viðtöl við fólk sem nú er löngu horfið, ásýnd bæja og borgar á árum fyrr, atvinnuhætti, tónlist, leikhús, stjórnmál, húmor og augnablik sem enginn vissi þegar þau voru tekin upp að myndu síðar verða hluti af sameiginlegu minni þjóðarinnar.
Í kvöld verður afmælinu fagnað á RÚV með sérstökum þætti, Sjónvarp í 60 ár, undir stjórn Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur. Þar verður stiklað á stóru í sögu íslensks sjónvarps, brautryðjendur rifja upp fyrstu árin og kunnugleg andlit úr sex áratuga sjónvarpssögu koma við sögu. Þátturinn hefst klukkan 20:15.
Takk fyri allt þitt RÚV.
-Örlygur Hnefill

