Hjartnæm og heillandi saga af sambýli fugla og manna í Fjalakettinum

Heimildarmyndin Fuglar (og menn) verður sýnd í Fjalakettinum á Húsavík í dag, sunnudaginn 25. október, klukkan 15.00. Myndin hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstaka náttúrulýsingu, hlýja frásögn og skemmtilegar persónur.

Á Sævarenda í Loðmundarfirði er að finna heldur óvenjulegt samfélag. Yfir vetrarmánuðina stendur bærinn mannlaus, en á hverju vori flykkjast þangað þúsundir æðarfugla til að verpa og ala upp unga sína. Þar taka á móti þeim hjónin Ólafur Aðalsteinsson og Jóhanna Óladóttir, sem hafa frá árinu 2000 annast æðarvarpið og skapað fuglunum öruggt skjól.

Í heimildarmyndinni Fuglar (og menn) fylgjast áhorfendur með einni sumarvertíð í firðinum, frá því fyrstu fuglarnir mæta að vori þar til ungarnir halda út í hinn stóra heim. Myndinni leikstýra Ingvar Þórðarson, Ragnar Axelsson og Mika Kaurismäki, en auk stórbrotinnar náttúru eru það mannlegu samskiptin, ekki síst vinátta þeirra Ólafs og Alberts, sem gefa myndinni sérstakan sjarma.

Úr heimildamyndinni Fuglar (og Menn)

Í ítarlegri gagnrýni í Lestinni á Rás 1 fór Kolbeinn Rastrick fögrum orðum um myndina. Hann segir leikstjórana hafa fundið „hið fullkomna aðalpersónudúó“ í þeim Óla og Alberti, sem séu einstaklega skemmtilegir og heillandi viðmælendur. Óli sé kíminn og glaðlyndur föndrari sem smíði ólík hús fyrir fuglapörin, en Albert sé fámáll og segist á hverju ári ætla að hætta, án þess þó að geta slitið sig frá staðnum.

Kolbeinn hrósar jafnframt klippingu myndarinnar og þeirri næmni sem einkennir frásögnina. Þótt lífið í firðinum gangi hægt fyrir sig sé myndin aldrei langdregin. Þar skiptast á kímni, kyrrð og erfið augnablik, enda náttúran ekki alltaf blíð við íbúa sína.

Að mati Kolbeins tekst kvikmyndagerðarmönnunum að lyfta viðfangsefninu langt umfram hefðbundna náttúruheimildarmynd. Hann segir myndina „hjartnæma mannlega sögu“ um tengsl fugla og fólks, en einnig um vináttu og samheldni mannanna sjálfra.

Kolbeinn lýkur gagnrýni sinni á þeim orðum að erfitt sé að kveðja Sævarenda eftir þessa tæplega einu og hálfu klukkustund með íbúum bæjarins. Áhorfandann langi helst að snúa aftur að ári liðnu.

Fjalakötturinn sýnir Fuglar (og menn) í dag, sunnudaginn 25. október, kl. 15.00.

Horfa á stiklu myndarinnar