Amanda Kernell hlaut Silfurskelina fyrir leikstjórn á San Sebastian kvikmyndahátíðinni

Sænsk-samíski leikstjórinn Amanda Kernell hlaut í gær Silfurskelina sem besti leikstjóri á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni fyrir Brace Your Heart.  Íslenski kvikmyndaframleiðandinn Heather Millard og Compass Films eru meðframleiðendur myndarinnar. Þá var stjórn kvikmyndatöku í höndum Sophia Olsson, sem íslenskir kvikmyndaáhugamenn ættu að kannast vel við. Hún hefur meðal annars verið kvikmyndatökustjóri Ljósbrots eftir Rúnar Rúnarsson og áður unnið að myndunum Þrestir og Eldfjall.

Ein þekktasta rödd samískrar kvikmyndagerðar

Amanda Kernell er fædd árið 1986 og er af samískum og sænskum uppruna. Hún hefur á undanförnum árum orðið ein þekktasta rödd samískrar kvikmyndagerðar á alþjóðavettvangi.

Hún vakti fyrst verulega alþjóðlega athygli með Sami Blood (Sameblod) árið 2016. Myndin fjallar um unga samíska stúlku í Svíþjóð á fjórða áratug síðustu aldar og átök hennar við fordóma, aðlögunarstefnu og eigin uppruna. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og vann þar meðal annars verðlaun fyrir bestu evrópsku myndina í Venice Days-hluta hátíðarinnar.

Kernell á sjálf rætur í hreindýraræktarsamfélagi Sama og sækir aftur í þann heim í Brace Your Heart. Hún hefur lýst myndinni sem persónulegu verki og ástarjátningu til þessa lífsmáta.

Ást, hefðir og lífið með hreindýrahjörð

Í Brace Your Heart segir frá Ejvu, ungri konu sem erfir hreindýrahjörð föður síns og reynir að halda bæði hjörðinni og lífsviðurværi sínu gangandi. Ástarsambönd, afbrýðisemi og ofbeldi setja síðan líf hennar úr skorðum og ógna getu hennar til að halda áfram því lífi sem hún þekkir. Með aðalhlutverk fara Elli Sara Valkeapää, Andte Gaup-Juuso og Vincent Niia.

Aðalverðlaun San Sebastian-hátíðarinnar, Gullnu skelina, hlaut að þessu sinni breski leikstjórinn Mike Leigh fyrir Tender Loving Care. Kernell hlaut hins vegar Silfurskelina fyrir bestu leikstjórn.