Hvað er Fjalakötturinn?

Fjalakötturinn er kvikmyndaklúbbur og vefmiðill um kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu. Fjalakötturinn leggur sérstaka áherslu á innlenda kvikmyndagerð, viðtöl við íslenskt kvikmyndagerðarfólk og frásagnir af kvikmyndahátíðum á Íslandi, en fylgist jafnframt með stefnum og straumum í alþjóðlegri kvikmyndamenningu.

Vefurinn rekur rætur sínar til kvikmyndavefsins Cinema.is sem var stofnaður árið 2004 og flutti fréttir úr heimi kvikmyndanna, auk þess að vera með sérvefi um þekkta leikstjóra og kvikmyndir þeirra. Á vefnum Cinema.is var auk þess fyrsti grunnur yfir allar útgefnar íslenskar kvikmyndir.

Nafn hins nýja miðils, Fjalakötturinn, er sótt djúpt í íslenska kvikmyndasögu. Árið 1906 var fyrsta kvikmyndahús Íslands opnað í Reykjavík og hlaut það nafnið Reykjavíkur Biograftheater en gekk í daglegu tali alltaf undir nafninu Fjalakötturinn. Bíóið var til húsa í Breiðfjörðsleikhúsinu við Aðalstræti 8 og varð fljótt einn helsti samkomustaður Reykvíkinga. Þar kynntust Íslendingar töfrum kvikmyndanna í fyrsta sinn á reglulegum sýningum.

Leikkonan Eufemía Waage lýsti húsinu við Aðalstræti síðar sem hálfgerðu ævintýrahúsi með háum stigum, svölum og glerþaki yfir porti inni í miðju hússins. Byggingin þótti svo sérstök og jafnvel dálítið glæfraleg að við hana festist nafnið Fjalakötturinn. Fjalakötturinn var ekki lengi eina kvikmyndahúsið á Íslandi því árið 1912 tók Nýja bíó til starfa. Við það varð Reykjavíkur Biograftheater að Gamla bíói í hugum bæjarbúa þótt það hefði vart slitið barnsskónum. Gamla bíó flutti svo á þriðja áratugnum upp á Ingólfsstræti þar sem kvikmyndasýningum var áfram haldið þar til á níunda áratugnum.

Þó hinn upprunalegi Fjalaköttur hafi verið rifinn árið 1985, þá hefur nafnið lifað áfram í íslenskri kvikmynda- og menningarsögu. Á árunum 1975 til 1980 rak Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn í Tjarnarbíói. Þar fengu margir íslenskir kvikmyndaunnendur sitt fyrsta kvikmyndauppeldi með sýningum á verkum meistara á borð við Bergman, Fellini, Kurosawa, Godard, Buñuel og Welles. Á upphafsárum Stöðvar 2 voru sýndar kvikmyndir, oft úr smiðju Evrópskra leikstjóra, síðla kvölds undir nafni Fjalakattarinas. Kvikmyndaklúbbur með sama nafni starfaði svo aftur í Tjarnarbíói á árunum fyrir hrun. Þá opnaði árið 2006 veitingastaður með nafninu á slóðum hins fyrsta kvikmyndahúss í Aðalstræti.

Fjalakötturinn, í öllum sínum birtingamyndum, hefur nú legið í dvala um nokkurra ára skeið en hefur nú fært sig um set til Húsavíkur. Hinn nýji Fjalaköttur okkar vill halda áfram þessari hefð, að skapa vettvang fyrir fólk sem elskar kvikmyndir, kvikmyndagerð og allt það sem gerist bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn rekur lítinn kvikmyndasal á Húsavík með 40 sætum sem komu úr Bíóhöllin við Álfabakka og sýnum við alla sunnudaga klassískar kvikmyndir og stöndum reglulega fyrir litlum kvikmyndahátíðum, ásamt því að halda úti þessum fréttavef um kvikmyndir og kvikmyndamenningu.