Fréttaritari fólksins naut þess heiðurs að vera fulltrúi heimspressunnar á endurfrumsýningu á heimildarmyndinni sem heitir Hlemmur og var í Bíótekinu (Bíó Paradís) sunnudaginn var. Fréttaritarinn sá ekki þessa mynd á sínum tíma, hún er nú orðin 25 ára, og var nokkuð eftirvæntingarfullur því að talsvert hefur verið með hana látið. Þetta er í raun og sann mjög merkileg heimildarmynd og þess virði að endurvekja hana og afla nýrra áhorfenda.
Hlemmur er eftir Ólaf Sveinsson, kvikmyndagerðarmann sem búsettur hefur verið í Þýskalandi og meira að segja fjármagnaði þessa mynd þar til að koma henni í gang á sínum tíma. Hún lýsir á mjög sannferðugan hátt, að því er manni finnst, lífi svokallaðs ógæfufólks eða útigangsfólks á Hlemmi.
Hlemmur er í myndinni sannkallaður hlemmur, hann er miðsvæðis í umfjölluninni og hefur sterka nærveru sem er ekki laus við að vera þrúgandi. Þetta er gamli Hlemmur eins og við munum hann: Strætómiðstöðin þar sem strætóarnir koma, skærgulir í löngum röðum, koma og fara, hringsóla umhverfis bygginguna og flytja fólk að og frá eins og lífsins straumur leiki þar um en inni er einhver klumpur, einhver hlemmur, þar sem situr ógæfufólk og bíður af sér daginn og þreyir þorra örlaganna.
Við kynnumst persónunum sem eru af ýmsum toga. Þetta fólk er eins og fast á einhverju tilverustigi, lokað inni undir hlemmi og glímir hvert við sín mismunandi afbrigði af ógæfu lífsins.
Það er magnað að hugsa til þess að á meðan á töku myndarinnar stóð, sem var innan við eitt ár, dóu sjö af þeim sem koma fram í myndinni og þar af var einn myrtur að því er sagt er. Ógæfan er yfirþyrmandi og allsráðandi. En þetta er mjög mannleg mynd líka og hún snertir taugar því að það kemur svo glögglega í ljós að þetta fólk hefur sínar vonir, væntingar og þrár eins og allir aðrir, auðvitað, við hverju býst maður?
Það er mjög vel gert hjá Ólafi í myndinni hvernig hann lætur miðstöðina Hlemm taka á sig þetta miðlæga hlutverk. Þyngdaraflið dregur mann að. Innanhúss fylgist maður með, stundum úr fjarlægð, stundum í mikilli nálægð, þeim sem hafast þarf við á daginn og er hent út, jafnvel með valdi, á kvöldin. Þarna eru menn sem glíma við geðveiki, þunglyndi, alkóhólisma af verstu sort og síðan vitum við af yfirþyrmandi og allt í kring ofbeldi
Ólafur hefur næmt auga fyrir myndbyggingu og leyfir því sjónræna að ríkja og senunum að anda á milli þess sem frásögnin er knúin áfram af uppákomum, samtölum milli þeirra sem eru aðalhetjur myndarinnar og svo nístandi þögulum myndskeiðum.
Það er eftirtektarvert að Ólafur hefur náð því sem er svo mikilvægt í svona „down and out“ sjúrnalisma, að ná trúnaði þeirra sem hann fæst við og segir frá. Stundum veit maður ekki alveg hvort atvikin eru tekin nánast eins og óafvitandi af þeim sem sýnt er frá – eða þau hluti af lauslegu handriti? Jafnvel skipulagaðar senur? Samtölin eru stundum kongelige kómísk en þess á milli skerandi sársaukafull.
Ég þekki það sem gamall heimildarskrásetjari götunnar úr bókinni „New York, New York“ að trúnaður við persónurnar, sem geta eðlilega verið mjög tortryggnar, er grundvallaratriði. Líka að sýna þeim virðingu, sem er gert í myndinni.
Það er klárlega eitt af aðalsmerkjum myndarinnar að allt þetta fólk (næstum allt karlar) er í raun og veru fullkomið jaðarfólk í íslensku samfélagi og flokkast undir þá verst settu – en birtist þarna sem lifandi, góðar (oftast) og einlægar (brotnar og mismunandi endurreistar) persónur sem eiga bara sinn djöful – meiriháttar djöful að draga.
Það sem manni finnst best við myndina er hvað hún virðist heiðarleg. Hún er vel gerð, myndræn og framsetningin öll mjög traust og örugg.
Hlemmur er átakanleg mynd um raunveruleika í íslensku samfélagi fyrir 25 árum og það versta við hana er kannski sú tilfinning sem maður gengur út með, að þetta hörmulega mannlega ástand sem við kynnumst á Hlemmi hafi í raun og veru versnað og ástandið sé verra, harðara, óvægnara og grimmara en nokkru sinni fyrr á Íslandi. Það er búið að djassa upp hlemminn, en hann er ekki farinn úr samfélagi okkar, bara þyngri og verri nú en áður.
Þetta er mynd sem fólk ætti sannarlega að horfa á og verður sýnd í Bíótekinu 24. október.
Og svo að lokum. Hlemmur sýnir á vægðarlausan hátt hve okkur skortir miklu meira af heimildamyndum um íslenskt samfélag.
– Stefán Jón Hafstein

