Um tímann og vatnið frumsýnd í Reykjavík í kvöld og á Seyðisfirði á sunnudag

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld, fimmtudaginn 27. ágúst, klukkan 19. Uppselt er á sýninguna og biðlisti eftir miðum. Myndin sem framleidd er af National Geographic byggir á sögu Andra Snæs Magnasonar og nýtir kvikmyndasafn fjölskyldu hans og ljósmyndasafn Árna, afa hans.

Þá verða Andri Snær og leikstjórinn Sara Dosa viðstödd sýningu í Bíó Paradís annað kvöld klukkan 19. Almennar sýningar verða í Bíó Paradís og Smárabíói. Andri Snær verður síðan viðstaddur sýningu myndarinnar í Herðubíói á Seyðisfirði á sunnudag.