Heimildarmyndin Eyríki verður sýnd í Fjalakettinum, kvikmyndasal Eurovision-safnsins á Húsavík, klukkan 17 í dag. Að sýningu lokinni munu Nikolai Galitzine, leikstjóri myndarinnar, og Dögg Mósesdóttir framleiðandi sitja fyrir svörum og ræða gerð myndarinnar við gesti.
Eyríki var frumsýnd á Akureyrarvöku í gær og fjallar um brunann í Miðgarðakirkju og baráttu Grímseyinga við að endurreisa kirkjuna. Sú saga verður jafnframt að stærri frásögn um þrautseigju íbúanna og óvissa framtíð eins afskekktasta samfélags landsins.
Myndin var valin í verkefnið 5Nordic í heimildarmyndadagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í vor, keppti á Skjaldborg og er nú tilnefnd sem besta norræna heimildarmyndin á Nordisk Panorama. Fjalakötturinn ræddi við Dögg Mósesdóttur um tilurð myndarinnar, kynni kvikmyndagerðarfólksins af Grímseyingum, baráttu afskekktra byggða fyrir tilveru sinni, og íslenskra heimildarmyndager.
Hvernig kom verkefnið Eyríki til þín?
„Við leikstjórinn Nikolai Galitzine eigum sameiginlega vinkonu, Bíbí, bassaleikara Kolrössu krókríðandi, og hún stakk upp á að við myndum vinna saman.
Ég hafði aldrei áður framleitt heimildarmynd eftir annan leikstjóra sem aðalframleiðandi. Ég er sjálf leikstjóri en hafði framleitt mína eigin heimildarmynd, Aftur heim?, og sjónvarpsþættina Allskonar kynlíf, þannig að ég gat nýtt þá reynslu.“
Hvað heillaði þig mest við sögu Grímseyinga og endurreisn Miðgarðakirkju?
„Endurreisn Miðgarðakirkju er svo táknræn fyrir þrautseigju og dugnað Grímseyinga. Barátta þeirra fyrir þessu litla samfélagi heillaði mig líka og ég tengi mjög sterkt við hana, enda er ég sjálf frá litlu sjávarplássi, Grundarfirði.“
Myndin fjallar einnig um tilverurétt lítils og afskekkts samfélags. Hvernig þróaðist sá vinkill við gerð hennar?
„Í gegnum kynni okkar af Grímseyingum kom í ljós að þeir standa frammi fyrir fjölda áskorana sem koma í veg fyrir að byggðin geti blómstrað. Einmitt núna ríkir mikil óvissa um framtíð byggðarinnar í eyjunni.
Ef ekkert verður gert til að bæta samgöngur og efla byggðina gætum við hafa fangað líf síðustu fjölskyldnanna í Grímsey. Við vonum svo sannarlega að svo sé ekki. Þetta minnir okkur á mikilvægi þess að fanga slíkar sögur áður en þær heyra sögunni til.“
Dögg segir ákveðna hliðstæðu einnig mega finna í stöðu íslenskrar heimildarmyndagerðar.
„Á sama tíma er heimildarmyndagerð á Íslandi að berjast fyrir tilverurétti sínum vegna niðurskurðar til Kvikmyndasjóðs. Við erum því svolítið eins og Grímseyingar; okkur fer fækkandi og við eigum sífellt erfiðara með að draga fram lífið.“
Oft er sagt að glöggt sé gests augað. Hvernig fannst þér Nikolai sjá Grímsey og samfélagið þar öðruvísi en við Íslendingar?
„Myndefnið sem Nikolai tók sjálfur er mjög sjónrænt og fallegt. Ég hafði aldrei séð Ísland frá þessu sjónarhorni eða tekið upp á þennan hátt í heimildarmynd. Nikolai nálgaðist efnið eins og hann væri að gera leikna kvikmynd.
Hann hefur búið víða um heim en hvergi upplifað sig meira heima en í Grímsey. Þegar maður horfir á myndina finnur maður hvað honum þykir vænt um Grímseyinga, sem eru orðnir eins og fjölskylda hans.“
Hvernig tóku Grímseyingar á móti ykkur?
„Nikolai vann við að byggja kirkjuna til að byrja með. Hann hafði því verið í mat hjá öllum Grímseyingum, tengst þeim sterkum böndum og orðið hluti af samfélaginu þegar ég kom inn í verkefnið.
Grímseyingar tóku okkur því mjög vel. Sumir voru feimnir við að koma fram í myndinni í fyrstu en létu sig hafa það að lokum.“
Tungumálið reyndist þó stundum áskorun fyrir Nikolai, einkum í viðtölum við eldra fólk.
„Þá áttaði ég mig á því hvað maður er fljótur að tengjast fólki þegar maður hefur tungumálið. Ég tengdi líka mjög sterkt við Grímseyinga, enda kem ég úr sjávarþorpi og hef verið til sjós. Sum þeirra þekktu meira að segja frændfólk mitt.“
Myndin hefur þegar vakið athygli og hlotið tilnefningar. Hvernig hefur vegferð hennar verið fram að þessu?
„Myndin var valin í Cannes sem verk í vinnslu í heimildarmyndahluta hátíðarinnar. Hún var síðan valin í keppni á Skjaldborgarhátíðinni í vor og er nú tilnefnd sem besta norræna heimildarmyndin á Nordisk Panorama, sem fer fram í september.“
Sýning Eyríkis í Fjalakettinum á Húsavík hefst klukkan 17 í dag. Að henni lokinni gefst gestum tækifæri til að ræða myndina við Dögg Mósesdóttur og Nikolai Galitzine.

