Kvikmyndin Anorgasmia var sigursæl á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni PIFF (The Pigeon International Film Festival), sem fram fór á Ísafirði, í Súðavík og á Þingeyri dagana 8.–11. október. Myndin hlaut alls fimm verðlaun, meðal annars sem besta íslenska kvikmyndin. Verðlaunaafhending hátíðarinnar fór fram á Dokkunni á Ísafirði sunnudagskvöldið 11. október.
Anorgasmia hlaut einnig verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku íslenskrar myndar, en þau féllu í hlut Graeme Dunn. Mathilde Warnier var verðlaunuð fyrir besta leik í íslenskri kvikmynd og besta leik í aðalhlutverki í flokki kvikmynda í fullri lengd. Þá hlaut íslenski leikarinn Gunnar Jónsson verðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki í sama flokki.
Kvikmyndin Last Moon var valin besta kvikmyndin í fullri lengd, en The Third Child hlaut verðlaun sem besta heimildarmynd hátíðarinnar. Pólska myndin Neverlandex var valin besta stuttmyndin og hlaut jafnframt verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku, sem Mateusz Gzel átti heiðurinn af.
Í flokki íslenskra kvikmynda vakti einnig athygli stuttmyndin Madelene eftir Bryndísi Örnu Sigurðardóttur. Hún hlaut tvenn verðlaun, fyrir bestu leikstjórn íslenskrar kvikmyndar og sem besta íslenska nemendamyndin. Þá fékk Lýður Árnason verðlaun fyrir besta handrit íslenskrar myndar fyrir The Troubadour Siggi Björns.
Fleiri verðlaun féllu í skaut kvikmyndagerðarfólks víðs vegar að úr heiminum. Amirali Navaee hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn kvikmyndar í fullri lengd fyrir Sunshine Express, en Daniel Poler hlaut handritsverðlaun fyrir Espina. Í flokki heimildarmynda fékk Jakub Piątek leikstjórnarverðlaunin fyrir Bacewicz x Bomsori, og Orsugiak – The White Gold of Greenland hlaut sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi rannsóknarvinnu. To Ashes var valin besta teiknaða stuttmyndin og Charm besta stop-motion myndin.
Að lokum hlaut kvikmyndagerðarmaðurinn Hermann Weiskopf heiðursverðlaun hátíðarinnar fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar.
Hægt er að sjá alla verðlaunahafa PIFF 2026 á vefsíðu hátíðarinnar, þar sem einnig má horfa á upptöku frá verðlaunaafhendingunni.

