Ástin sem eftir er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Íslenska kvikmyndin Ástin sem eftir er hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Leikstjórinn og handritshöfundurinn Hlynur Pálmason hlýtur tilnefninguna ásamt framleiðendunum Antoni Mána Svanssyni og Katrin Pors.

Þetta er í fjórða sinn sem Hlynur Pálmason er tilnefndur til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Framleiðandinn Anton Máni Svansson hefur hlotið tilnefningar til verðlaunanna og hafa leiðir þeirra legið saman í fjórum þeirra. Fyrsta tilnefning Hlyns kom árið 2018 fyrir Vetrarbræður (Vinterbrødre), sem var framlag Danmerkur til verðlaunanna. Anton Máni var þar einn framleiðenda myndarinnar, en árið áður hafði hann verið tilnefndur fyrir íslensku kvikmyndina Hjartastein. Ári síðar, 2019, var Hlynur aftur tilnefndur, þá fyrir Hvítan, hvítan dag. Sú mynd var framlag Íslands og Hlynur var tilnefndur sem bæði leikstjóri og handritshöfundur ásamt framleiðandanum Antoni Mána Svanssyni. Þriðja tilnefning Hlyns kom árið 2022 fyrir Volaða land (Vanskabte Land / Godland). Þar var hann enn á ný fulltrúi Danmerkur sem leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar. Anton Máni var einn framleiðenda.

Ástin sem eftir er fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla hið breytta samband þeirra.

Rökstuðningur dómnefndar:
„Ástin sem eftir er sýnir frá ári í lífi Önnu og Magnúsar, sem eru í miðju skilnaðarferli, er þau fóta sig í gegnum vinnu, kynlíf og þær flóknu aðstæður sem fylgja fjölskyldulífi með táningsdóttur og tvíburastrákum. Senur úr lífi fjölskyldunnar kalla fram tilfinningar um öryggi og tengsl sem hafa ef til vill breyst en ekki horfið.

Hlynur beitir mismunandi takti við klippingu myndarinnar, sem sést einna best þegar tíminn er látinn líða hratt, en hann tekur sér einnig tíma til að dvelja við það sem fangar athygli myndavélarinnar og þjónar frásögninni, og ekki síður fallegt landslagið, sem hann notar til að ramma inn brotið fjölskyldulíf fremur en til að sýna fegurðina eina. Hlynur heldur áfram að nota myndhlutfallið 4:3 og beita kyrrmyndum, sem hann notar ásamt tvískiptum myndum og heimaupptökum til að undirstrika framvindu tímans. Þessum öruggu stílbrögðum er nú beitt á tilraunakenndari nálgun á línulega frásögn en áður, með eyðum og stökkum milli tímabila. Heildarútkoman er engu að síður raunsæ og gamansöm sýn á sorg, ást, list og störf.“

Í dómnefnd Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 sitja Jacob Ludvigsen (frá Danmörku), Jan Berg Jørgensen (frá Færeyjum), Marjo Pipinen (frá Finnlandi), Jóna Finnsdóttir (frá Íslandi), Anne Gjelsvik (frá Noregi) og Jonas Holmberg (frá Svíþjóð).

Myndin fylgir fjölskyldu í gegnum fjórar árstíðir þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Verðlaunin verða afhent í Helsinki 27. október. Nánar er fjallað um tilnefninguna á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.