Skjaldborg verður sett annað kvöld á Patreksfirði, en þetta er í 19. sinn sem heimildarmyndahátíðin fer fram. Alls keppa tíu íslenskar heimildarmyndir til verðlauna í ár, þar af fimm í fullri lengd og fimm stuttar myndir.
Auk keppnismyndanna verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá með sýningum frá heiðursgestum hátíðarinnar sem koma frá Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héruðum Norður-Skandinavíu.
Hátíðarpassar veita aðgang að öllum viðburðum helgarinnar, auk gistingar á tjaldsvæði og frítt í sund. Þá er einnig boðið upp á hefðbundnar kræsingar sem hafa lengi verið hluti af Skjaldborgarstemningunni, meðal annars plokkfiskboð kvenfélagsins og sjávarréttaveislu.
„Þetta er í rauninni orðin hálfgerð árshátíð heimildarmyndafagsins og heimildarmyndaunnenda,“ segir Kristín Andrea Þórðardóttir, skipuleggjandi hátíðarinnar, í samtali við RÚV.

