Ný íslensk spennumynd, Hafið er svart (Dark Ocean), er nú komin á fullt skrið og hefur þegar vakið töluverða athygli á alþjóðlegum kvikmyndamarkaði. Myndinni verður leikstýrt af Baldvini Zophoníassyni og meðal leikara eru Baltasar Kormákur, Ólafur Darri Ólafsson, Þorsteinn Bachmann og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
Myndin er framleidd af Glassriver og verður kynnt fyrir dreifingaraðilum og fjárfestum á Marché du Film markaðnum í Cannes síðar í þessum mánuði. Alþjóðlega sölufyrirtækið Rocket Science sér um alþjóðlega sölu myndarinnar.
Samkvæmt umfjöllun Deadline og Variety er Hafið er svart myrk og klaustrofóbísk dramamynd sem gerist um borð í íslenskum togara. Sagan fylgir ungum háseta í sinni fyrstu veiðiferð þar sem áhöfnin þarf að takast á við miskunnarlaus náttúruöfl, erfiðar aðstæður og andlegt álag um borð.
Sjóferðin tekur skyndilega dökka stefnu þegar einn skipverja fremur sjálfsvíg, en skipstjórinn neitar að snúa aftur til hafnar. Áhöfnin neyðist því til að halda áfram ferðinni við sífellt erfiðari aðstæður.
Hugmyndin að myndinni kviknaði hjá Baldvini eftir að hann las frétt árið 2015 um sjómenn sem höfðu farið í land til að aðstoða við björgunarstörf eftir snjóflóð í Súðavík árið 1995 og var svo snúið beint aftur til sjós eftir þá reynslu.
„Þeim var bannað að tala um það og tjá tilfinningar sínar,“ sagði Baldvin í samtali við Variety, þar sem hann ræddi meðal annars hvernig myndin fjalli um sorg, karlmennsku og tilfinningalega einangrun.
Handrit myndarinnar er eftir Matthías Tryggva Haraldsson úr hljómsveitinni Hatara.
Athygli vekur að Baltasar Kormákur snýr hér aftur fyrir framan myndavélina eftir að hafa nær eingöngu einbeitt sér að leikstjórn síðustu tvo áratugi. Baldvin sagði í samtali við Variety að hann hefði lengi reynt að fá Baltasar til að leika á ný.
„Baltasar er frábær leikari og ég hef reynt að fá hann á hvíta tjaldið í þónokkurn tíma,“ sagði Baldvin.

