Húsavík Youth Film Festival haldin í fyrsta sinn í febrúar

Ný alþjóðleg kvikmyndahátíð fyrir ungt kvikmyndagerðarfólk, Húsavík Youth Film Festival, verður haldin í fyrsta sinn á Húsavík dagana 27. og 28. febrúar 2027. Hátíðin er sérstaklega ætluð upprennandi kvikmyndagerðarfólki, hvort sem er frá Íslandi eða öðrum löndum.

„Markmið hátíðarinnar er að skapa vettvang fyrir næstu kynslóð kvikmyndagerðarfólks og gefa ungum höfundum tækifæri til að sýna verk sín hér á landi,“ segir á vefsíðu hátíðarinnar. Tekið er á móti myndum í fimm flokkum; leiknum stuttmyndum, heimildarstuttmyndum, teiknimyndum, tónlistarmyndböndum og nemendaverkefnum. Valdar myndir verða sýndar á Húsavík meðan á hátíðinni stendur og verðlaun veitt fyrir framúrskarandi verk í öllum fimm keppnisflokkunum.

Að hátíðinni stendur Könnunarsögusafnið á Húsavík, en starfsfólk safnsins hefur í rúman áratug skipulagt kvikmyndahátíðina Explorers Festival. Nánari upplýsingar um hátíðina og um innsendingu kvikmynda má finna á vefsíðunni YouthFilm.org.