Kristín Andrea Þórðardóttir tilnefnd til framleiðendaverðlauna fyrir Íslands hönd

Framleiðandinn og leikstjórinn Kristín Andrea Þórðardóttir hefur verið tilnefnd fyrir Íslands hönd til Nordic Documentary Producer Award, norrænna verðlauna fyrir framleiðendur heimildamynda. Verðlaunin verða afhent á Nordisk Panorama hátíðinni í Malmö í Svíþjóð í september.

Einn framleiðandi frá hverju Norðurlandanna er tilnefndur til verðlaunanna fyrir störf sín undanfarin fimm ár. Markmið þeirra er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki framleiðenda í heimildamyndagerð og nemur verðlaunaféð 10.000 evrum.

Fagfélög kvikmyndagerðarmanna á Norðurlöndunum annast tilnefningar frá hverju landi. Félag kvikmyndagerðarmanna tilnefnir Kristínu Andreu fyrir Íslands hönd og vísar í umsögn sinni meðal annars til mikillar reynslu hennar, leiðtogahlutverks og listræns árangurs.

Kristín Andrea hefur yfir 20 ára reynslu af kvikmyndagerð. Hún hóf feril sinn sem framleiðandi en hefur síðar einnig starfað sem leikstjóri og undanfarinn áratug hefur skapandi heimildamyndagerð verið í brennidepli hjá henni. Hún er nú að ljúka við metnaðarfulla heimildamyndaseríu og kemur jafnframt að alþjóðlegum samframleiðsluverkefnum.

Í umsögn Félags kvikmyndagerðarmanna er einnig sérstaklega bent á framlag hennar til íslenskrar heimildamyndagerðar. Hún hefur undanfarin ár verið í forystu fyrir Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, auk þess að gegna öðrum lykilhlutverkum innan heimildamyndasamfélagsins. Félagið segir eldmóð hennar, forystu og listrænan árangur gera hana að framúrskarandi fulltrúa Íslands.

Auk Kristínar Andreu eru Helle Faber frá Danmörku, Juha Löppönen frá Finnlandi, Elisabeth Kleppe frá Noregi og Elin Kamlert frá Svíþjóð tilnefnd til verðlaunanna. Stjórn Nordisk Panorama velur verðlaunahafann.

Nordisk Panorama fer fram í Malmö dagana 17.–22. september. Hátíðin er ein helsta kvikmyndahátíð sinnar tegundar á Norðurlöndum og sýnir eingöngu verk norrænna kvikmyndagerðarmanna.

Í fyrra hlaut íslenski framleiðandinn og leikstjórinn Hanna Björk Valsdóttir verðlaunin.

Ljósmynd: Patrik Ontkovic / Kvikmyndamiðstöð Íslands