Stuttmyndirnar sem tilnefndar eru til Edduverðlaunanna í ár verða sýndar í sérstakri dagskrá í Háskólabíó næstkomandi fimmtudag. Um er að ræða eina opna sýningu þar sem almenningi og meðlimum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar gefst kostur á að sjá myndirnar áður en kosning til Edduverðlaunanna fer fram.
Myndirnar sem sýndar verða eru Bjargvættur eftir Erlu B. Skúladóttur, Móðan eftir Jón Karl Helgason, Síðustu orð Hreggviðs eftir Grím Hákonarson, Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson og Vín hússins eftir Þorkel Harðarson og Örn Marínó.
Sýningin er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.

