Edduverðlaunin voru veitt í 6. skipti í gærkvöldi og fór hátíðin fram á Nordica Hotel. Það var kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson sem var sigurvegari kvöldsins en hún hlaut verðlaun í 5 flokkum, m.a. sem besta myndin, besta leikstjórn, besti leikari í aðalhlutverki og jafnframt í aukahlutverki. Blindsker eftir Ólaf Jóhannesson hlaut verðlaun sem besta heimildamyndin og Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson var valin besta stuttmyndin.
Kaldaljós besta myndin 2004
