Breska sjónvarpsstöðin Talking Pictures TV, sem feðginin Noel Cronin og Sarah Cronin-Stanley reka úr garðskúr bak við heimili Noels, segir tilvist sína í hættu ef bresk stjórnvöld ákveða að leggja niður Freeview-útsendingar og færa allt sjónvarp yfir á netið. Stöðin hefur verið rekin af Noel og Söruh frá árinu 2015 og sérhæfir sig í klassískum kvikmyndum og gömlum sjónvarpsþáttum. Hafa þau feðgin byggt upp um 5,5 milljóna áhorfendahóp með sýningum á kvikmyndum frá gullöld breskrar kvikmyndagerðar.
Feðginin segja að stór hluti áhorfenda þeirra sé yfir 65 ára aldri og vilji hvorki né geti treyst á streymisveitur með mánaðargjöldum. Þau óttast að ef hefðbundnar loftnetssendingar verði lagðar niður, muni rásin einfaldlega ekki lifa breytingarnar af.
Talking Pictures TV hefur oft verið kölluð „Shedflix“ vegna þess að hún er rekin úr garðskúr við heimili fjölskyldunnar í Hertfordshire. Þrátt fyrir harða samkeppni frá streymisveitum halda feðginin því fram að eftirspurn eftir sígildum kvikmyndum sé enn mikil og að ókeypis línulegt sjónvarp gegni áfram mikilvægu hlutverki fyrir milljónir áhorfenda.
Ljósmynd frá Cronin fjölskyldunni.

