Lést skömmu fyrir frumsýningu á framhaldi The Wicker Man

Breski kvikmyndaleikstjórinn Justin Hardy er látinn, 61 árs að aldri, eftir hjartaáfall. Hardy hafði nýlokið við nýja kvikmynd sem byggir áfram á heimi The Wicker Man, hinnar goðsagnakenndu hryllingsmyndar sem faðir hans, Robin Hardy, leikstýrði árið 1973. Frumsýning myndarinnar átti að fara fram síðar í þessum mánuði, en fjölskylda hans segir það sárt að hann fái ekki að upplifa þann áfanga.

Í yfirlýsingu frá fjölskyldunni kemur fram að Justin hafi verið „fullur af lífi allt til loka“ og ákaflega spenntur fyrir frumsýningunni. „Við erum ótrúlega stolt af honum en harmi slegin yfir að hann verði ekki með okkur á frumsýningunni. Hann var fjölskyldumaður, óþrjótandi uppspretta sköpunar og einstaklega tryggur þeim sem honum þótti vænt um,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. Bróðir hans, Dominic Hardy, sagði Justin hafa haft „ótrúlega lyst fyrir lífinu“.

Robin Hardy skipaði sér sess í kvikmyndasögunni með The Wicker Man, sem í dag er talin ein áhrifamesta breska hryllingsmynd allra tíma. Myndin, með Edward Woodward, Christopher Lee og Britt Ekland í aðalhlutverkum, segir frá lögreglumanni sem ferðast til afskekktrar skoskrar eyju til að rannsaka hvarf ungrar stúlku. Þar kemst hann að því að íbúarnir fylgja fornum heiðnum siðum undir stjórn hins dularfulla Lord Summerisle, sem Christopher Lee túlkaði með eftirminnilegum hætti. Þrátt fyrir litla athygli við frumsýningu hefur The Wicker Man áratugum síðar öðlast stöðu sannkallaðrar kultmyndar og haft gríðarleg áhrif á þróun þjóðsagnahryllings í kvikmyndum.