Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjord hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gær. Myndin er í leikstjórn Cristian Mungiu og fjallar um Gheorghiu-fjölskylduna sem sest að í afskekktu þorpi í norskum firði. Þegar ungur drengur úr fjölskyldunni mætir með marbletti í skólann fara barnaverndaryfirvöld að rannsaka aðstæður heimilisins.
Sebastian Stan og Renate Reinsve fara með aðalhlutverkin í myndinni.
Þá hlaut Minotaur eftir Andrei Zvyagintsev Grand Prix-verðlaunin á hátíðinni, sem nú var haldin í 79. sinn.

