PIFF: Dúfan fer á flug í sjötta sinn fyrir vestan

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin The Pigeon International Film Festival, PIFF, hefur kynnt dagskrá sína fyrir árið 2026. Hátíðin fer nú fram í sjötta sinn og verður haldin á Ísafirði, í Súðavík og á Þingeyri dagana 8.–11. október.

Dagskráin hefst með opnunarathöfn í Ísafjarðarbíói fimmtudaginn 8. október. Næstu fjóra daga verða þar sýndar fjölmargar stuttmyndir, heimildarmyndir og kvikmyndir í fullri lengd, meðal annars Anorgasmia, 1001 Frames, Last Moon, Ride Back to Faith, Espina, Sunshine Express og Angst. Sérstakar stuttmyndadagskrár verða jafnframt sýndar í Kaupfélaginu í Súðavík og Félagsheimilinu á Þingeyri.

PIFF leggur áherslu á sjálfstæða kvikmyndagerð og nýstárlega frásögn. Auk sýninga verður boðið upp á samtöl við kvikmyndagerðarfólk og ýmsa sérstaka viðburði. Hátíðinni lýkur með verðlaunaafhendingu á Dokkunni á Ísafirði sunnudagskvöldið 11. október.

Dagskrá PIFF 2026 má nálgast í heild á vef hátíðarinnar.