Óperutímabilið vetrarins er að hefjast í Sambíóunum í Kringlunni, en þetta er sautjánda árið sem kvikmyndahúsið sýnir beinar útsendingar frá Metropolitan-óperunni í New York.
Tímabilið hefst nú á laugardag, 19. september klukkan 17 með heimildarmyndinni Twenty Years of the Met in Cinemas: An Anniversary Celebration. Í myndinni leiðir óperustjarnan Renée Fleming áhorfendur í gegnum eftirminnileg augnablik úr tuttugu ára sögu beinna útsendinga frá Metropolitan-óperunni í kvikmyndahúsum víða um heim.
Á dagskrá vetrarins verða óperurnar Così fan tutte, Macbeth, Samson et Dalila, La Fanciulla del West, Silent Night, Manon, Otello og Parsifal. Þá verða sérstakar hátíðarendursýningar á Carmen frá 2010, The Magic Flute frá 2006 og Tosca frá 2024.
Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir það ávallt sérstaka upplifun að sjá sýningar frá þessu magnaða óperuhúsi á stóra tjaldinu. Í kringum sýningarnar hafi í gegnum árin myndast einstaklega tryggur og þakklátur hópur óperugesta sem sé Sambíóunum ómetanlegur.
Dagskrá tímabilsins í heild má finna á vef Sambíóanna.

