Heimildamyndin Eyríki eftir írsk-rússneska leikstjórann Nikolai Galitzine verður frumsýnd í Sambíóunum á Akureyri á Akureyrarvöku þann 28. ágúst. Myndin fjallar um brunann í Miðgarðakirkju í Grímsey, þegar kirkjan brann til grunna, og baráttu Grímseyinga í kjölfarið. Sú barátta snerist ekki aðeins um að endurreisa kirkjuna heldur einnig um framtíð og tilverurétt samfélagsins í einni afskekktustu byggð Íslands.
Að sýningu lokinni verður boðið upp á spurningar og svör með Nikolai Galitzine, leikstjóra myndarinnar. Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri mun einnig sitja fyrir svörum og má búast við líflegum umræðum um stöðu og framtíð Grímseyjar.
Frumsýningin verður fimmtudaginn 28. ágúst klukkan 18 og tvær aukasýningar verða á Eyríki í Sambíóunum á Akureyri, 31. ágúst og 3. september.
Myndin hefur þegar vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Hún er tilnefnd sem besta norræna heimildamyndin á Nordisk Panorama kvikmyndahátíðinni og var jafnframt valin til þátttöku í 5Nordics-dagskránni í tengslum við kvikmyndahátíðina í Cannes í vor.

