Á sama tíma og samdráttur hefur greinst í ferðaþjónustu víða um land hefur Ísland sjaldan verið jafn áberandi í alþjóðlegum stórmyndum og á þessu ári. Vinsælar kvikmyndir og sjónvarpsþættir geta haft veruleg áhrif á áhuga ferðafólks á tökustöðum og því má ætla að þessar framleiðslur geti skilað auknum straumi gesta til landsins á komandi árum. Á meðal þeirra kvikmynda sem teknar hafa verið hér að hluta eða nýta íslenskt landslag eru Ódysseifskviða (The Odyssey), Supergirl, Masters of the Universe, Greenland 2: Migration og væntanlega stórmyndin Dune: Part Three. Þá var kvikmyndin The Brink of War, sem fjallar um Höfðafundinn 1986, einnig tekin upp hér á landi.
Ítarlega var fjallað um málið á RÚV í vikunni, þar sem einnig er farið yfir hvernig kvikmyndir og sjónvarpsþættir hafa ítrekað skapað aukinn áhuga á áfangastöðum um allan heim. Þar er meðal annars fjallað um komandi verkefni á borð við The Rings of Power og nýja Star Wars-þáttaröð, auk þess sem rifjað er upp að Ísland hefur áður verið tökustaður stórmynda á borð við Oblivion, Noah, The Secret Life of Walter Mitty, Thor: The Dark World og Star Trek Into Darkness, að ónefndri Eurovision-mynd Will Ferrell sem tekin var upp á Húsavík og hefur átt stóran þátt í að vekja athygli á bænum meðal erlends ferðafólks.
Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóri Truenorth, segir að þrír þættir skipti mestu máli þegar stór kvikmyndaverkefni velja Ísland: stórbrotið og aðgengilegt landslag, öflugt íslenskt kvikmyndafólk og samkeppnishæft endurgreiðslukerfi. Hann bendir á að 35% endurgreiðsla sé lykilforsenda þess að hingað komi stórar framleiðslur með hundruð starfsmanna, en ekki aðeins litlir tökuflokkar sem safna bakgrunnsefni.
„Þetta kemur allt í einhverjum svona sveiflum. Maður hefur nú séð stærri ár en þetta eru klárlega stórir póstar og sérstaklega eins og Odyssey, hún vekur gríðarlega athygli og það sama mun Dune 3 gera sem er frábært fyrir Ísland,“ segir Leifur B. Dagfinnsson í viðtalinu.

