Um 100 manns komu að upptökum fyrsta þáttar raunveruleikaþáttanna The Amazing Race sem var tekinn upp hér á landi á dögunum. Um helmingur hópsins kom frá bandaríska sjónvarpsfyrirtækjunum CBS og Jerry Bruckheimer Productions en hinn helmingurinn frá íslenska framleiðslufyrirtækinu Pegasus. Talið er að rúmlega 11 milljónir Bandaríkjamanna horfi á þáttinn þegar hann verður frumsýndur vestanhafs.
Mikil leynd ríkti yfir verkefninu á meðan undirbúningi og tökum stóð og voru starfsmenn bundnir trúnaði þar til tökum lauk. Þátturinn var tekinn upp á þremur dögum í ágúst, en undirbúningur hafði staðið yfir frá því í vor.
Einar Sveinn Þórðarson hjá Pegasus sagði verkefnið hafa verið umfangsmikið enda hafi þurft að samhæfa tökur á mörgum stöðum á sama tíma. Hann sagði einnig að endurgreiðslukerfi fyrir erlenda kvikmyndagerð hafi skipt miklu máli þar sem Ísland væri kostnaðarsamt tökuland.
Bandaríska framleiðsluteymið hafi verið afar ánægt með samstarfið og vonast var til að verkefnið myndi opna dyr fyrir fleiri sambærilegar upptökur hér á landi.

