22 kvikmyndir frá 17 löndum á Húsavík um helgina

Kvikmyndahátíðin Explorers Festival verður haldin á Húsavík í ellefta sinn dagana 12.–16. nóvember næstkomandi og verður dagskráin glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Alls verða sýndar 22 kvikmyndir frá 17 löndum, auk þess sem boðið verður upp á fyrirlestra, samtöl við kvikmyndagerðarfólk og ferðir um náttúru Þingeyjarsýslna.

„Landkönnunarhátíð hefst á Húsavík á morgun í 11. sinn og í ár sýnum við 22 kvikmyndir, bjóðum upp á áhugaverða fyrirlestra og ferðumst um draumkennda náttúru í Þingeyjarsýslum. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði,“ segja í tilkynningu á vef hátíðarinnar. Einnig verður boðið upp á Q&A viðburði með leikstjórum og framleiðendum eftir valdar sýningar.

Myndirnar sem verða sýndar á hátíðinni eru:

  • 45 Days – Sensing the Polar Night frá Þýskalandi
  • A Remote Frontier frá Austurríki og Bretlandi
  • A Tale of Two Qallunaat frá Kanada
  • Alone in Greenland frá Spáni
  • Chasing the Arctic Melt frá Svíþjóð
  • Civil Disobedience frá Noregi
  • Crossing Through the Highlands of Iceland frá Bandaríkjunum
  • First Day of Winter frá Slóveníu
  • Green Citizen frá Ítalíu
  • Iceland, sprakkar land frá Frakklandi
  • Kaeté frá Brasilíu
  • Kingdom of Fish: The Power of Water frá Svíþjóð
  • Look Down Not Up frá Nepal
  • Nodules frá Bandaríkjunum
  • On Melting Snow frá Belgíu og Íslandi
  • Outside the Frame frá Kanada
  • Polar Pulse frá Frakklandi og Nýja-Sjálandi
  • Russian Spitsbergen frá Noregi, Rússlandi og Svalbarða
  • Space Chasers frá Bandaríkjunum
  • The Bear Hunter frá Bandaríkjunum
  • The Rift frá Ungverjalandi
  • Wild Proximity frá Belgíu

Kvikmyndirnar fjalla meðal annars um heimskautaleiðangra, loftslagsbreytingar, náttúruvernd, vísindi, fjallamennsku, djúpsjávarrannsóknir og lífið á afskekktustu svæðum heimsins. Meðal tökustaða eru Grænland, Nepal, Svalbarði, íslenska hálendið, Amazon-skógarnir og norðurslóðir Kanada.

Explorers Festival hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu meðal alþjóðlegra heimildamynda- og könnunarhátíða fyrir úrval mynda. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði hátíðarinnar.