Harry Potter-stjörnur heim­sóttu Húsa­vík

Ör­lygur Hnefill Ör­lygs­­son, hótel­­stjóri á Húsa­­vík, birti í dag mynd á Face­­book af Harry Potter-stjörnunum James Phelps, Oli­ver Phelps og Bonni­e Wrig­ht sem fóru með hlut­­verk Fred, Geor­­ge og Ginny Weasl­ey í hinni geysi­vin­­sælu kvik­­mynda­­seríu er þau sóttu heim barinn Ja Ja Ding Dong á Húsa­­vík.

Leikararnir þrír virtust al­sælir með heim­sóknina enda skæl­brosandi á myndinni þar sem þau stilla sér upp með Jóhönnu Ás­dísi Baldurs­dóttur og Ör­lygi.

Frá vinstri: Bonnie, James, Jóhanna, Ör­lygur og Oli­ver.

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu þann 14. september 2021