Örlygur Hnefill Örlygsson segir dapurlegt ef Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ætli að beita sér gegn frumvarpi Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, um hækkun endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar.
Endurskoðun á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar var áherslumál í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Lilja lagði fram frumvarpið í síðasta mánuði en þar er mælt með að hlutfall endurgreidds framleiðslukostnaðar fyrir afmörkuð stærri verkefni verði 35 prósent, en fyrir önnur verkefni verði hlutfallið áfram 25 prósent eins og verið hefur.
„Kvikmyndagerð hefur orðið sífellt mikilvægari þáttur í íslensku atvinnu- og menningarlífi síðustu ár. Tækifærin innan greinarinnar eru mikil og hafa áhrif á atvinnu um allt land. Alþjóðlega samkeppnishæft stuðningskerfi við framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis verður eflt. Við ætlum að styðja enn frekar við greinina með hærri endurgreiðslum á skýrt afmörkuðum þáttum til að stuðla að því að fleiri stór verkefni verði unnin alfarið á Íslandi og tryggja aukinn fyrirsjáanleika í fjármögnun kerfisins,“ segir í greinargerð frumvarpsins.
Atvinnuveganefnd Alþingis tók málið fyrir á morgun og fékk á fund til sín gesti frá Viðskiptaráði og fjármálaráðuneytinu. Katrín Anna Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sendi bréf til nefndarinnar þar sem frumvarpið er gagnrýnt. Ráðuneyti Bjarna segir frumvarpið ófjármagnað og að samráð hafi skort við samningu þess. Engar fjárheimildir séu til staðar til að mæta því.
Örlygur Hnefill bendir á að tökudagar fyrir Eurovision kvikmyndina Eurovision Song Contest: The Story of Fire hafi verið fimm en mikið af senum sem áttu að gerast á Íslandi voru teknar í öðrum löndum þar sem hagstæðara var að taka upp.
„Við á Húsavík höfum séð það betur en margir aðrir hversu miklu svona verkefni getur skilað. Hækkun endurgreiðslu um 10 prósentustig mun skipta miklu og endurgjöfin verður margföld í hagkerfið á Íslandi,“ skrifar Örlygur á Facebook.
Ekki er um einsdæmi að ræða. Líkt og Fréttablaðið greindi frá voru senur í kvikmyndinni The Northman, sem áttu að gerast á Íslandi teknar upp á Írlandi. Ástæðan er sú að kvikmyndaiðnaðurinn á Íslandi er ekki samkeppnishæfur um þessar mundir. Ef stjórnvöld bæta úr því gætu milljarða fjárfestingar í greininni verið handan við hornið.
„Eitt svona kvikmyndaverkefni getur gert ótrúlega mikið,“ segir Örlygur í samtali við Fréttablaðið.
Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu þann 2. júní 2022

