„Ég fékk Sálina eiginlega beint í æð sem barn,“ segir Höskuldur Þór Jónsson, leikstjóri söngvamyndarinnar Hvar er draumurinn? sem hefur slegið í gegn í íslenskum kvikmyndahúsum síðustu vikur. Myndin verður sýnd í Fjallakettinum á Húsavík helgina 3. og 4. október næstkomandi. Myndin sem varð til upp úr söngleik Verzlunarskólans, var gerð án hefðbundinnar styrkfjármögnunar og segir Höskuldur að markmiðið hafi frá upphafi verið að gera íslenska söngvamynd sem sækti í okkar eigin tónlist, sögu og menningu.
Hvar er draumurinn? var frumsýnd 3. september og fór í efsta sæti íslenska bíólistans fyrstu tvær vikurnar í sýningu. Myndin byggir á lögum Sálarinnar hans Jóns míns og gerist í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum. Þar fylgjumst við með Bjarti, rótlausum ungum manni, vinahópi hans og baráttu þeirra fyrir því að bjarga skemmtistaðnum Sódómu frá lokun. Inn í söguna fléttast síðan ástin þegar Bjartur kynnist Hófí, sem kemur úr allt öðrum heimi. Hugmyndin að verkinu á langan aðdraganda.
Langar að Ísland eigi sína söngvamynd
Höskuldur var ráðinn til að leikstýra nemendamótssýningu Verzlunarskóla Íslands árið 2023 og kviknaði þá hugmyndin að byggja söngleik utan um tónlist Sálarinnar hans Jóns míns. Söngleikurinn fékk nafnið Hvar er draumurinn? og vakti mikla athygli.
Höskuldur segir að strax þegar leyfi fékkst frá Stefáni Hilmarssyni og Sálarmönnum hafi hann farið að velta fyrir sér hvort hugmyndin gæti orðið eitthvað meira.
„Um leið og við fengum grænt ljós frá Stebba og Sálinni fór ég að hugsa um að þetta gæti orðið stærra verkefni. Allir þekkja Grease og þessar klassísku söngvamyndir og mig langaði að Ísland ætti líka svona mynd, byggða á okkar eigin sögu, menningu og tónlist.“
Tengingin við tónlist Sálarinnar var ekki ný af nálinni. Höskuldur ólst upp við lög sveitarinnar.
„Ég á ófáar góðar minningar af því að sitja í aftursætinu í bíl hjá mömmu eða vera heima þar sem Sálin var spiluð. Hún var harður aðdáandi. Það má eiginlega segja að ég hafi fengið Sálina beint í æð sem barn.“
Þegar hann fór síðan að vinna með lagasafnið við gerð söngleiksins segist hann hafa enduruppgötvað tónlistina.
„Maður fór að finna alls konar tóna og tilfinningar í lögunum sem maður hafði kannski ekki tekið eftir áður. Mig langaði að gera kvikmynd úr þessum katalóg sem maður hafði alist upp við.“

Sálarmenn gáfu honum lausan tauminn
Kynni Höskuldar af Stefáni Hilmarssyni hófust þegar hugmyndin að söngleiknum var kynnt fyrir honum.
„Við Stebbi kynntumst þegar við fórum á fund til að ræða söngleikinn. Hann tók okkur mjög vel, gaf mér grænt ljós og leyfði mér í raun að leika lausum hala.“
Höskuldur segir að sér hafi fundist Sálarmönnum sjálfum koma uppsetning Verzlunarskólans nokkuð á óvart þegar þeir sáu sýninguna.
„Mín tilfinning var að þegar þeir mættu á sýninguna hafi þetta komið þeim svolítið á óvart. Ég fann fyrir áhuga hjá þeim á að sjá þetta þróast áfram og það hjálpaði mikið þegar við fórum af stað með kvikmyndina.“
„Þá beit ég í hnefann og ákvað að kýla á þetta“
Leiðin frá sviði yfir á hvíta tjaldið var þó langt frá því að vera greið. Höskuldur segir að upphaflega hafi staðið til að framleiða myndina eftir hefðbundnum leiðum. Hann ræddi við rótgróið framleiðslufyrirtæki og farið var af stað í umsóknarferli um styrki. Þær umsóknir báru hins vegar ekki þann árangur sem vonast hafði verið eftir.
„Kannski var þetta ekki hefðbundið kvikmyndasjóðsverkefni og þetta var auðvitað líka fyrsta kvikmyndin mín. Þegar ljóst var að við fengjum ekki stuðninginn beit ég bara í hnefann og ákvað að kýla á þetta. Ég ætlaði ekki að láta það stöðva okkur.“ Það kallaði á óhefðbundna framleiðslu og mikla áhættu.
„Ég fékk mjög gott fólk með mér í lið sem var tilbúið að taka þessa áhættu með mér. Ég fjármagnaði sjálfur stærstan hluta af föstum útgjöldum og við fengum í raun aðeins utanaðkomandi stuðning fyrir mat á setti.“
Höskuldur segir fjármögnunarumhverfið fyrir íslenskar bíómyndir erfitt, sérstaklega fyrir verkefni sem fara ekki hefðbundnar leiðir.
„Landslagið fyrir svona stykki í bíó er dálítið töff núna, hvort sem það er kvikmyndasjóður eða stuðningur frá fyrirtækjum. Það er eins og íslensk fyrirtæki hafi ekki alveg kveikt á hugmyndinni um að koma inn í svona verkefni og hvað það getur skilað þeim miklu.“
Vissi að þau væru með eitthvað ferskt
Áhættan virðist þó hafa skilað sér í góðri aðsókn. Hvar er draumurinn? fór beint í fyrsta sæti íslenska bíólistans eftir frumsýningu og myndin er enn í almennum sýningum þremur vikum síðar.
Höskuldur segir viðtökurnar hafa verið ánægjulegar, þó að hann hafi frá upphafi haft mikla trú á verkefninu.
„Ég hafði trú á myndinni frá upphafi og hafði alltaf tilfinningu fyrir því að við værum með eitthvað nýtt og ferskt sem gæti slegið í gegn. Það er ekki fyrir hvern sem er að gera söngvamynd og þetta hefur í raun ekki verið gert á þessum skala hér heima, kannski bara síðan Með allt á hreinu. Auðvitað komu viðtökurnar okkur aðeins á óvart, en um leið var þetta nákvæmlega það sem við ætluðum okkur.“
Hann segist þó manna best vita að myndin sé ekki gallalaus. „Ég veit alveg að þetta er ekki fullkomin mynd. Ef við hefðum haft meiri stuðning hefðum við getað farið lengra með ýmsa hluti. En við erum heldur ekki að reyna að kljúfa atómið eða útskýra mannskepnuna í þessari mynd. Við erum að hafa gaman og syngja um ástina.“
Þurfum nýja leið til að koma íslenskum myndum inn á heimilin
Höskuldur segir Hvar er draumurinn? fyrst og fremst hafa verið gerða fyrir íslenska áhorfendur. Hún hafi ekki verið hönnuð með alþjóðlega kvikmyndahátíðahringrás að leiðarljósi.
„Þessi mynd er gerð fyrir landann. Hún var ekki hugsuð sem einhver hátíðamynd. Næsta skref er klárlega að reyna að koma henni í sjónvarp og tryggja að fólk geti haldið áfram að horfa á hana.“
Sumar íslenskar kvikmyndir fyrri ára öðluðust framhaldslíf inni á heimilum landsmanna þegar þær voru gefnar á VHS með pylsupökkum. Fyrir vikið rötuðu margar þeirra inn á ótal heimili.
„Pylsupakkarnir hjálpuðu á sínum tíma til við að koma myndum inn í þjóðarsálina. Við þurfum einhvern veginn að finna nýja leið til þess í dag.“
Hugmyndirnar vantar ekki
Þrátt fyrir að mikið púður hafi farið í að koma fyrstu kvikmyndinni í fullri lengd alla leið á hvíta tjaldið er Höskuldur þegar farinn að horfa fram á veginn.
Hvað kemur næst? „Það vantar aldrei hugmyndir,“ segir hann. „Ég er með ýmislegt í bígerð, en auðvitað hefur mjög mikill tími og kraftur farið í að klára þessa mynd. Það er því ekkert ákveðið enn.“
Hvar er draumurinn? verður sýnd í Fjalakettinum á Húsavík laugardaginn 3. október kl. 20:00 og sunnudaginn 4. október kl. 15:00.


