Heimildarmyndin Jörðin undir fótum okkar, í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna árið 2027. Dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar valdi myndina en í henni sátu fulltrúar helstu fagfélaga kvikmyndaiðnaðarins, kvikmyndahúsa, gagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Myndin fjallar um vistfólk hjúkrunarheimilisins Grundar, þar sem Yrsa hefur sjálf starfað um árabil. Myndin var frumsýnd á RIFF á síðasta ári, sýnd á RÚV um páskana og valin heimildarmynd ársins á Edduverðlaununum. Í umsögn valnefndar er myndinni lýst sem einstaklega vel gerðu, persónulegu og áhrifaríku verki sem nálgist síðasta skeið mannsævinnar af kærleika, nærgætni og virðingu.
Jörðin undir fótum okkar er framleidd af Hönnu Björk Valsdóttur fyrir Akkeri Films og meðframleiðandi er Malgorzata Staron hjá Staron Film í Póllandi. Stuttlisti Óskarsverðlaunanna verður kynntur 15. desember, tilnefningar verða opinberaðar 21. janúar 2027 og verðlaunahátíðin fer fram í 99. sinn sunnudaginn 14. mars.

