Eyríki, Póstkort og Sundruð sýndar á Nordisk Panorama

Fjórar myndir með íslenska aðkomu verða sýndar á Nordisk Panorama 2026, einni helstu hátíð Norðurlanda fyrir heimildamyndir og stuttmyndir. Hátíðin fer fram í Svíþjóð dagana 17.–22. september.

Heimildamyndin Eyríki, eftir leikstjórann Nikolai Galitzine, verður sýnd í flokknum New Nordic Documentaries. Dögg Mósesdóttir framleiðir myndina sem fjallar um Grímsey og þær áskoranir sem samfélagið stendur frammi fyrir eftir að Miðgarðakirkja brann til grunna.

Stutta heimildamyndin Póstkort, í leikstjórn Freyju Kristinsdóttur, verður sýnd í flokknum New Nordic Voice. Heather Millard framleiðir myndina, sem segir frá manni sem gengur Jakobsveginn með 46 póstkort í farteskinu, eitt fyrir hvert ár sem hann átti með eiginkonu sinni.

Stuttmyndin Sundruð, eftir Fan Sissoko, keppir í flokknum Best Nordic Short Film. Myndin segir frá Neemu, ungum innflytjanda á Íslandi, sem upplifir óvæntar umbreytingar í vikulegum ferðum sínum í sundlaugina. Heather Millard framleiðir myndina.

Þá verður dansk-norsk-íslenska samframleiðslan If Luck Will Come, í leikstjórn Camille Bildsoe, sýnd í New Nordic Voice. Hanna Björk Valsdóttir er meðframleiðandi myndarinnar, sem fylgir tveimur afgönskum börnum eftir undir stjórn Talíbana.

Nordisk Panorama er haldin í 37. sinn í ár og sýnir eingöngu heimildamyndir og stuttmyndir eftir norrænt kvikmyndagerðarfólk.

Fleiri íslensk verkefni kynnt

Íslensk kvikmyndagerð verður einnig áberandi í iðnaðarhluta hátíðarinnar. Verkefnin My Sister in Law, the Prime Minister, eftir Lexi Leban, og Rimmugýgur, eftir Heimi Frey Hlöðversson, verða kynnt á Nordisk Panorama Forum, þar sem kvikmyndagerðarfólk getur kynnt verkefni fyrir sjónvarpsstöðvum, kvikmyndasjóðum og öðrum fjármögnunaraðilum.

Heimildamyndirnar Dýrið sem hlær, eftir Ágúst Bent Sigbertsson, og Heiðin, eftir Jessicu Auer, verða jafnframt hluti af Observer+ kynningu.

Tvær íslenskar stuttmyndir hafa einnig verið valdar í The Nordic Short Film Pitch: Opus Americana, í leikstjórn Ólafs Árheims Ólafarsonar, og Kleinur, í leikstjórn Birnu Ketilsdóttur Schram.