Heimildamyndin „Voru allir hér?“ sem segir 100 ára sögu Laugaskóla í Reykjadal var sýnd á RÚV í gærkvöldi. Myndin var frumsýnd í kvikmyndahúsinu Þróttó á Laugum á aldarafmæli skólans í október í fyrra, en hún rekur sögu skólans og þau djúpu áhrif sem hann hefur haft á menntun, íþróttalíf og menningarstarf á Norðurlandi. Í myndinni er ræðir Ottó Gunnarsson, leikstjóri myndarinnar, við fjölda fyrrverandi nemenda og starfsfólks sem rifja upp lífið á Laugum og þann einstaka anda sem einkennt hefur skólann í gegnum tíðina.
Hægt er að horfa á myndina hér: Voru allir hér? – Laugar í 100 ár
„Þessi heimildamynd er með þeim allra bestu í þeim flokki. Ef ekki sú besta. Öll umgjörð, vinnsla, grafík, viðtöl og tónlist til mikillar fyrirmyndar. Tilfinningarík. Þeim til mikils sóma er að henni stóðu,“ skrifar Stefán Guðmundsson á Facebook og taka margir undir í þræðinum.

| Leikstjóri | Ottó Gunnarsson |
|---|---|
| Framleiðandi | Búi Baldvinsson |
| Meðframleiðandi | Örlygur Hnefill Örlygsson |
| Handritshöfundur | Ottó Gunnarsson |
| Kvikmyndatökustjóri | Vilius Petrikas |
| Kvikmyndataka | Örlygur Hnefill Örlygsson |
| Frumsamin tónlist | Einar Sv. Tryggvason |
| Klipping | Daniel Bjarnason |
| Hljóðupptaka | Gísli Magnús Torfason |
| Brellur og sjónræn áhrif | Jón Már Gunnarsson |
| Titillag myndar | Stebbi Jak |
| Litaleiðrétting | Vilius Petrikas |
Ánægður með viðtökurnar
Ottó Gunnarsson leikstjóri segist í samtali við Fjalaköttinn mjög ánægður með viðtökurnar eftir sýningu myndarinnar í gær. „Mér sýnist að miðað við sunnudag um verslunarmannahelgi, þá hafi óvenju margir setið og horft á línulegri dagskrá RÚV og þau sem misstu af geta auðvitað séð hana í Sarpinum á RÚV.is,“ segir Ottó. Hann segir að stærsta áskorunin við gerð myndarinnar hafi verið að þjappa hundrað ára sögu saman í 75 mínútna heimildarmynd. „Því miður var fullt af skemmtilegu myndefni, ljósmyndum og sögum frá viðmælendum sem rötuðu ekki í myndina. En ég held að það hafi náðst að fleyta rjómann og púsla saman í eina heimildarmynd í fullri lengd. Ég held að þessi mynd nái að sýna og túlka hvað þessi staður stendur fyrir í hjörtum svo margra sem komu þar við,“ segir Ottó.
Sýnd fyrir troðfullum bíóhúsum
Myndin var sýnd nokkrum sinnum í kvikmyndahúsinu Þróttó á Laugum í tengslum við aldarafmæli Laugaskóla, auk tveggja sýninga í Bíó Paradís í Reykjavík og tveggja sýninga í Sambíóunum á Akureyri. Aðsókn var mikil, enda margir gamlir Lauganemar sem bera sterkar tilfinningar til gamla skólans síns. Þá hlaut mikla viðurkenningu þegar hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna 2026 fyrir bestu klippingu. Klippingin var í höndum Daníels Bjarnasonar. Ottó nefnir einnig að sérstök vinna hafi verið lögð í að endurvekja hinn sígilda Laugamannasöng, sem hvergi fannst á upptöku. Karlakórinn Hreimur útsetti lagið upp á nýtt og Borgar frá Brúum sá um upptökuna. „Alveg geggjað, og ég og margir fleiri bíða eftir að þeir taki sig til og skelli því á Spotify,“ segir Ottó.
» Sjá einnig: „Þú getur tekið strákinn úr sveitinni en þú tekur aldrei sveitina úr stráknum“

