Segir sögu sérstakra safna í tveimur nýjum heimildamyndum

Stefán Jón Hafstein fjallar um sérstæð söfn og fólkið að baki þeim í tveimur nýjum heimildamyndum sem verða sýndar í kvikmyndaklúbbnum Fjalakettinum  á Húsavík á miðvikudag. Myndirnar fjalla annars vegar um Minjasafnið á Mánárbakka og hins vegar Safnasafnið á Svalbarðseyri. Dagskráin hefst klukkan 20 og er aðgangur ókeypis.

Fyrri mynd kvöldsins fjallar um Aðalgeir Egilsson og hið sérstæða safn sem hann hefur byggt upp á Mánárbakka á Tjörnesi um áratugaskeið. Myndin verður forsýnd í Sólvangi, félagsheimili Tjörnesinga, fyrr um daginn, þegar Aðalgeir fagnar 90 ára afmæli sínu, en opinber frumsýning verður síðan í Fjalakettinum um kvöldið.

Í myndinni er gengið um gamla gula húsið Þórshamar og torfbæinn í túninu, þar sem Aðalgeir segir frá fjölbreyttum safngripum. Þeir spanna allt frá fyrsta eldspýtustokknum sem hann eignaðist til sjaldgæfra konungsgripa og gamalla handrita. Aðalgeir er ekki síður kunnur sem sagnamaður en safnari, auk þess sem hann sinnti veðurathugunum á Tjörnesi í 60 ár.

„Hérna týnist ekki tíminn, hann er vandlega varðveittur af einlægum áhuga,“ segir Stefán Jón Hafstein, höfundur myndarinnar. Heimildamyndin er 35 mínútur að lengd og er bæði saga um einstakt og persónulegt safn og óður til manns sem hefur bjargað mikilvægri menningararfleifð fyrir komandi kynslóðir.

Seinni mynd kvöldsins fjallar um Safnasafnið á Svalbarðseyri, höfuðsetur alþýðulistar á Íslandi, sem fagnar 30 ára afmæli á þessu ári. Þar fá áhorfendur innsýn í hugsjónir og störf frumkvöðlanna Níelsar Hafstein og Magnhildar Sigurðardóttur. Sú mynd er 45 mínútur að lengd.

Báðar myndirnar eru framleiddar af Íslandi ehf. og Qjujak árið 2026. Stefán Jón Hafstein stýrir frásögn og viðtölum en Óskar Páll Sveinsson annast myndatöku og klippingu. Sýningin í Fjalakettinum er fyrsta opinbera sýning beggja mynda og er öllum opin.