Andri Snær Magnason hefur verið tilnefndur til Jackson Wild-verðlaunanna fyrir frammistöðu sína sem þulur í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið. Meðal annarra tilnefndra í sama flokki eru engir aukvisar, fyrrverandi Bandaríkjaforseti Barack Obama og kanadíski leikarinn Ryan Reynolds.
Andri Snær greindi frá tilnefningunni á Facebook í kvöld. Myndin hlýtur alls þrjár tilnefningar til verðlaunanna, sem oft hefur verið lýst sem eins konar Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda.
„Ég fæ tilnefningu sem þulur myndarinnar en tveir aðrir tilnefndir eru kunnuglegir og báðir með ensku að móðurmáli. Barack Obama og Ryan Reynolds,“ skrifar Andri og bætir við að raddþjálfun hafi komið að góðum notum. „Ég verð nú að segja að Ragnheiður Steindórs eigi þakkir skildar fyrir raddþjálfun!“
Heimildarmyndin Um tímann og vatnið byggir á samnefndri bók Andra Snæs og var heimsfrumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í janúar. Við gerð myndarinnar fengu kvikmyndagerðarmennirnir aðgang að umfangsmiklu kvikmynda- og ljósmyndasafni fjölskyldu Andra, sem nær aftur til miðrar síðustu aldar. Efnið er fléttað saman við sögu fjölskyldunnar, minningar og íslenska náttúru.
Jackson Wild Media Awards eru alþjóðleg verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi kvikmyndagerð og frásagnarlist á sviði náttúru, vísinda og náttúruverndar. Jackson Wild á rætur að rekja til náttúrulífskvikmyndahátíðar sem stofnuð var árið 1991.
Um tímann og vatnið verður frumsýnd hér á landi í næstu viku í Bíó Paradís og Smárabíói. Hátíðarsýning myndarinnar í Háskólabíói er þegar uppseld. Auk þess verður myndin sýnd undir lok mánaðar í Herðubíóí á Seyðisfirði.

