Gerir heimildamynd um leiðtoga Grænlands á stormasömum tíma í heimsmálum

Danski kvikmyndagerðarmaðurinn Christoffer Guldbrandsen hefur fengið 2,85 milljónir danskra króna í framleiðslustyrk úr sjóði dönsku kvikmyndastofnunarinnar vegna nýrrar heimildarmyndar sinnar, sem nefnist Spillet om riget. Myndin fjallar um hinn unga forsætisráðherra Grænlands, Jens-Frederik Nielsen. Guldbrandsen hefur fylgt Nielsen eftir í rúmt ár, allt frá því hinn þá 34 ára gamli stjórnmálamaður vann afgerandi kosningasigur og tók við stjórnartaumunum á Grænlandi. Á þeim tíma hefur hann meðal annars þurft að takast á við aukna spennu í samskiptum við Bandaríkin og umræðu um mögulega íhlutun þeirra í málefni eyjarinnar.

Leikstjórinn er þekktur fyrir að komast mjög nærri valdafólki þar sem stórar pólitískar ákvarðanir eru teknar. Meðal verka hans eru A Storm Foretold, um Roger Stone, fyrrverandi ráðgjafa Donalds Trump, auk heimildarmynda um danska stjórnmálamenn á borð við Anders Fogh Rasmussen, Mogens Lykketoft og Naser Khader.

Ljósmynd: Christian Ursilva