Norskir dagar

 

Norskir dagar á Fjalakettinum

Það eru norskir dagar á veitingastaðnum Fjalakettinum dagana 13. til 17. maí.

Á Fjalakettinum ætlum við að blása til langrar og skemmtilegrar helgar með norskri stemningu. Matur og menning með norskri tónlist.

Við fáum í heimsókn á Fjalaköttinn, norskan matreiðslumann, Lars Lervik, frá norður Þrændalögum, og ætlar hann að matreiða fyrir okkur og kynna norska matargerð. Lars er mjög hæfileikaríkur matreiðslumaður og hefur hann meðal annars sérhæft sig í eftirréttum með jarðaberjum. Hann á ekki langt að sækja áhuga sinn á jarðaberjum. Lars ólst upp á jarðaberjaakri í mið Noregi en hann er sonur eins stærsta jarðaberjabónda þar í landi og hefur því handleikið jarðaberin frá barnsaldri. Hann þekkir því vel til ávaxtarins, áferðar hans, litbrigða og bragðsins á hinum ýmsu þroskastigum. Lars lætur einnig hugmyndaflugið njóta sín við ísgerðina og er þar sannkallaður listamaður á ferðinni.

Norskir dagar á Fjalakettinum

Á norsku dögunum verðum við með hágæða a la carte matseðil á Fjalakettinum og verður aðaláherslan á norska matargerð. Þjóðhátíðardagur norðmanna er 17. maí, sem ber upp á mánudag, og ætlum við að halda hann hátíðlegan með sérstökum hátíðarmatseðli.  Lars hefur sett saman spennandi fjögurra rétta matseðil sem verður í gildi  frá fimmtudegi til sunnudags og á mánudeginum verður sex rétta matseðill.
Norræn matargerðarlist er vinsæl á alþjóðlegum vettvangi og Fjalakötturinn er þekktur fyrir nýnorræna matargerð þar sem íslenskt hráefni er lykiluppistaðan í matreiðslunni.
Að beiðni Norska sendiráðsins mun Valgeir Guðjónsson tónlistar og skemmtikraftur með meiru halda uppi fjörinu og flytja norsk lög og skemmtisögur eins og honum einum er lagið. Dagskrá Valgeirs verður klukkan 22:00 – 23:00 og sérstök hátíðardagskrá verður á þjóðhátíðardaginn.


Matseðlarnir á norsku dögunum

Fjögurra rétta matseðill
Áquavítis marineraða hreindýr með papriku aioli
Silunga “tartar” með reyktum silung og soya- engifers kjarna
Hreindýr með sultu úr lauk og þurruðum ávöxtum, sellerírótar mauk, þúsundlaga kartöflur og rosmarinsósa
Súkkulaði “tart” dúó með jarðarberja- og greni hnúpa ís, mango og múltuberja sósu

Verð fyrir 4 rétta 6.900 krónur

Þjóðhátíðarmatseðill  17. maí
Sex rétta matseðill

Áquavítis marineraða hreindýr með papriku aioli
Silunga “tartar” með reyktum silung og soya- engifers kjarna
Lamb og kál (Þjóðar réttur norðmanna) með trönuberja ís- krapi
Sinneps bökuð stórlúða með sætkartöflu mauki, jarðsveppa(truffle) risotto og sítrus beurre blanch
Hreindýr með sultu úr lauk og þurruðum ávöxtum, sellerírótar mauk, þúsundlaga kartöflur og rosmarinsósa
Súkkulaði “tart” dúó með jarðarberja- og greni hnúpa ís, mango og múltuberja sósu

Verð fyrir 6 rétta 7.900 krónur

Rækjur, léttvín og lifandi norsk tónlist

Uppsalir - bar og kaffihús, verður með rækjukokteil, hvítvín og kampavín á tilboðsverði á norsku dögunum. Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður spilar öll kvöld frá fimmtudegi til mánudags frá klukkan 22:00 – 23:00. Á þjóðhátíðardeginum mun fjörið halda áfram fram eftir kvöldi.

Pantanir á norska daga

Pantaðu núna á netfangið

dining@hotelcentrum.is

eða hringdu í síma 514 6060


Hádegi á Uppsölum

Það er mikið úrval af léttum réttum í boði á Uppsölum. Upplagt að njóta hádegisverðar í skemmtilegu umhverfi.
Kíktu á matseðilinn.


Sælkeramatseðillinn

Sælkeramatseðillinn er sérvalinn af matreiðslumeisturum kattarins og er breytilegur til að tryggja ferskleika hráefnisins hverju sinni.
Meira


Sex til sýnis

Martreiðslumeistarar Fjalakattarins matreiða sex mismunandi girnilega rétti af sérréttarseðli.

Í boði er glas af sérvöldu víni með hverjum rétt.

Sjá meira

14.950,-