Fjalakötturinn

 

Fjalakötturinn - Veitingastaður í miðbæ Reykjavíkur

Fjalakötturinn alþjóðlegur veitingastaður í nýbyggðu húsi við Aðalstrætið sem byggt var að fyrirmynd Fjalakattarhússins sögufræga.  Gestir fá að upplifa alvöru Reykjavíkurstemmingu fullkomnaða með fyrsta flokks þjónustu og matseðli.  Fjalakötturinn býður upp á alþjóðlegt eldhús og fjölbreytni úr úrvals íslensku hráefni.  Áhersla er lögð á fagmennsku og gott úrval af vínum.  Þar má finna árgangavín sem eru seld  á góðu verði.  Fjalakötturinn hefur verið sæmdur verðlaunum fyrir vínseðil frá Wine Spectator.

Fagmennskan í fyrirrúmi
Á Fjalakettinum er lögð áhersla á fagmennsku og gott úrval af vínum.  Veitingastjóri staðarins leggur metnað sinn í að hafa fyrsta flokks þjónustu í þægilegu umhverfi.


Uppsalir - bar og kaffihús
Uppsalir eru við hlið Fjalakattarins þar sem gestir geta fengið sér minni og léttari rétti, slakað á og notið þess að fá sér drykk fyrir eða eftir matinn í huggulegu umhverfi gamla Aðalstrætis 16.

Opnunartími Fjalakattarins og Uppsala
Fjalakötturinn er opinn frá kl. 18:00 til miðnættis.
Uppsalir eru opnir frá 11:30 og til miðnættis. Um helgar eru Uppsalir opnir frá hádegi til klukkan eitt um nóttina.

Fjalakötturinn er reyklaus staður.                       

Borðapantanir í síma 514-6060


Hádegi á Uppsölum

Það er mikið úrval af léttum réttum í boði á Uppsölum. Upplagt að njóta hádegisverðar í skemmtilegu umhverfi.
Kíktu á matseðilinn.


Jóla- og áramótamatseðill 2010

Glæsilegur og hátíðlegur jóla- og áramótamatseðillinn á Fjalakettinum. Hann kemur skemmtilega á óvart.
Kíktu á seðilinn og pantaðu núna.


Sælkeramatseðill

Þriggja rétta sælkeramatseðill að hætti Fjalakattarins.

Sælkeramatseðillinn er sérvalin af matreiðslumönnum kattarins
og er breytilegur til að tryggja ferskleika hráefnisins hverju sinni.

Lesa meira

5.900,-