Fjalakötturinn er staðsettur í nýbyggðu húsi við Aðalstrætið sem byggt var að fyrirmynd Fjalakattarhússins sögufræga. Á Fjalakettinum er lögð áhersla á nýnorræna matargerð og fjölbreytilegt úrval af íslensku hráefni. Áhersla er lögð á fagmennsku og gott úrval af vínum.
Gestir upplifa alvöru Reykjavíkurstemmingu fullkomnaða með fyrsta flokks þjónustu og matseðli.
Opnunartími Fjalakattarins og Uppsala
Fjalakötturinn er opinn frá kl. 18:00 til 22:00 virka daga en til 23:00 á föstudögum og laugardögum.
Uppsalir eru opnir frá 11:30 og til 23:00 alla virka daga. Um helgar eru Uppsalir opnir frá hádegi til klukkan eitt um nóttina á föstudögum og laugardögum.
Það er mikið úrval af léttum réttum í boði á Uppsölum. Upplagt að njóta hádegisverðar í skemmtilegu umhverfi.
Kíktu á matseðilinn.
Glæsilegur og hátíðlegur jóla- og áramótamatseðillinn á Fjalakettinum. Hann kemur skemmtilega á óvart.
Kíktu á seðilinn og pantaðu núna.
Þriggja rétta sælkeramatseðill að hætti Fjalakattarins.
Sælkeramatseðillinn er sérvalin af matreiðslumönnum kattarins
og er breytilegur til að tryggja ferskleika hráefnisins hverju sinni.
Lesa meira